Ég er á lífi...

...eða með lífsmarki ölluheldur.

Góðan dag gott fólk, vegna fjölda áskoranna þá ætla ég að henda inn einni bloggfærslu núna:)

Þar sem það eru rúmir þrír mánuðir síðan ég bloggði síðast þá held ég að ég nenni ekki að telja allt upp það sem við höfum verið að gera síðan þá, en ég skal fara nokkra daga aftur í tímannHlæjandi

Eins og þið kannski vitið þá ætla ég að klára námið nú um áramót, ég á eftir vettvangsnámið sem eru 10 vikur og svo lokaritgerðina. Í lok ágúst kom það í ljós að leiðsagnakennarinn minn í vettvangsnáminu er engin önnur er Ásdís vinkona, bara fyndiðBrosandi svo það er eins gott að standa sig vel.

Hún Harpa Sól átti afmæli 27.ágúst og varð 6.ára og er því byrjuð í skóla og gengur bara vel.

Berglind Birta er komin í 2.bekk og er bara ánægð í skólanum.

Og svo er litla snúllan mín hún Rannveig orðin rúmlega 10 mánaða(finnst eins og hún hafi fæðst í gær) og hún er byrjuð hjá dagmömmu, henni Boggu okkar en hún passaði Birtu og Hörpu líkaGlottandi

BÚLGARÍA

Við hjónaleysin fórum til Búlgaríu 31.ágúst og komum aftur þann 7.sept. Við fórum með tæplega 60 manna hópi, s.s pípóköllum og mökumHlæjandi Ferðin var í alla staði frábær, afslöppun, gott veður, góður matur og ekki skemmdi fyrir að verðlagið þarna úti er bara djók. Lang dýrasta máltíðin sem við Gummi borguðum fyrir var á frábærum veitingastað niður við strönd, við sátum uppi á þaki og horfðum yfir ströndina og sjóinn. Við fengum okkur shopska salat í forrétt, ótrúlega góðar nautasteikur í aðalrétt og rauðvínsflösku, bananasplitt í eftirrétt og ég fékk mér baileyskaffi og Gummi fékk sér Irishkaffi og svo tvo stóra bjóra og fyrir þessa máltíð borguðum við 100 levur með tippsi og það gera tæplega 5000 krónurUllandi. En annars vorum við að borga í kringum 20-30 levur eða 1000-1500 fyrir máltíðina. Gísli bróðir Gumma og konan hans hún Guðlín voru líka í þessari ferð og við vorum mikið saman, við fórum t.d fimm kvöld af sjö á coktelbar sem heitir La Bamba og stelpan sem þjónaði þar var hreint út sagt ÆÐI, lífsglaðari manneskju hefur maður varla séð. Coktelarnir voru æði, við náðum ekki að smakka alveg alla en við fórum langleiðina en þeir voru 101 talsins.Glottandi

Við fórum í eina dagsferð á vegum ferðaskifstofunnar og hún var til Nessebar, en Nessebar er á heimsminjaskrá UNESKO, það var mjög gaman að koma þangað. Fyrsta daginn okkar þá tókum við leigubíl til Varna sem er önnur stærsta borgin í Búlgaríu, og fórum í verslunarferðSvalurmeð Gísla og Guðlínu. Við tókum leigubíl frá hótelinu okkar, hann keyrði okkur til Varna, beið eftir okkur í fimm klukkutíma, skutlaði okkur svo í eina verslunarmiðstöð á leiðinni heim og beið þar í 30 mín og svo heim á hótel og við borguðum honum 60 levur eða 3000 kr bara fyndið.

Það var voða skrítið að vera bara við tvö, gera bara nákvæmlega það sem okkur hentaði þegar okkur hentaði, sváfum út og borðuðum þegar okkur hentaði en samt var hugurinn heima hjá stelpunum okkar sem voru góðum höndum Auu ömmu og Grétu frænku, takk fyrir elskurnar.Hlæjandi

Það var einn dagur sem stóð samt uppúr í ferðinni. Það var dagurinn sem ég fór í fallhlíf og var dregin af báti og horfði yfir Golden Sands ströndina sem við vorum við:) það var geggjað. Við röltum með mömmu og pabba eftir ströndinni og Gummi og pabbi fóru á sæþotu og svo var ákveðið að fara í fallhlífina, við fórum öll fjögur í bátinn og pabbi byrjaði á að fara upp, þegar hann kom niður þá sagði hann við mig að hann héldi að ég myndi ekki geta þetta, Gummi fór næstur upp og ég var að reyna að telja í mig kjark til að fara og þegar Gummi kom niður þá sáum við að pabbi hélt sér í á vitlausum stað og þessvegna fannst honum þetta ekki henta mér. Ég svo fór ég upp og það var geggjað, set inn myndir af þessu.

 

Jæja svo kom að leiðarlokum og við héldum út á flugvöll fimmtudaginn 7.sept sæl eftir góða ferð, við fórum í loftið kl 16 að staðartíma og lentum um 18:30 að staðartím heima en þetta er rúmlega 5 tíma flug og þriggja tíma tíma mismunur.

En svo byrjar það, Gummi var orðin veikur í fluginu og lá svo killiflatur þegar heim var komið, ég byrjaði á föstudagsmorgninum og við liggjum enn viku seinna.Gráta Við fengum okkur nefnilega kjúklingakebab síðasta kvöldið okkar og af öllu líkindum þá veiktumst við af því.

Ég átti að byrja í vettvangsnáminu á föstudaginn fyrir viku og ég segi nú ekki annað en guði sé lof að ég lenti hjá henni Ásdísi minni hún er búin að vera mjög skilningsrík og ég fékk að bæta nokkrum dögum aftan við vettvagstímann svo að ég myndi nú ekki falla á mætingu:) En við hjónaleysin erum nú óðum að skríða saman og ná heilsu og ég held að farið eftir klósettsetuna sé að fara af afturendanum á okkur hehe. Rannveig Gréta er búin að liggja heima með okkur með háan hita og mjög pirruð greyið, en hún er öll að koma til litla jarðýtan okkar.

Ég vil nota tækifærið og þakka ferðafélögunum fyrir frábæra ferð og svo er bara að halda myndakvöld við tækifæri. Eftir því sem ég best veit þá komu allir heilir heim og það urðu engin alvarleg óhöpp í ferðinni fyrir utan eitt fall, en ein ónafngreind kona í ferðinni ætlaði að fá sér einn snúning við ljósastaur en það vildi nú ekki betur til en það að ljósastaurinn féll og dansmærin líka. Þetta fór nú allt betur en áhorfðist í fyrstu en það er betra að vara sig á ljósastaurunum í Búlgaríu því þeir eru ekki mjög vel festir.Glottandi

En það var samt gott að komast heim þrátt fyrir góða ferð og veikindi við heimkomu. Stelpurnar hjálpuðu okkur að taka uppúr töskunum um kvöldið og ætluðu að rifna af gleði yfir því sem þær fengu.

Barnsfæðingar og afmæli

Sunnudaginn 10.sept eignaðist Unnur frænka Gumma stelpu og þeim heilsast vel, Unnur innilega til hamingju með prinsessuna.

Mánudaginn 11.sept eignuðust Katrín og Ari lítinn prins og þeim heilsast vel, Ari, Katrín og Pétur Ari til hamingju með litla prinsinn.

Mánudaginn 11.sept átti hún Emma Karen afmæli, hún varð eins árs litla prinsessan. Elsku Emma Karen til hamingju með afmælið og við sjáumst vonandi á morgun.

Jæja nú ert þú sem ert enn að lesa orðin dauðþreytt/ur á þessu bulli, en takk fyrir að lesa og ég ætla að skelli inn nokkrum myndum af Búlgaríuferðinni.

Vonandi verður styttra þangað til ég skrifa næst en ef ekki þá óska ég ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári hehe

kveðja Kristín á dollunni.

p.s ég er nýbúin að setja inn fullt af myndum á síðurnar hjá stelpunum, ekki sömu myndir á öllum síðunum.

 

 

 

 


Ef þú giftist, ef þú bara giftist, ef þú giftist mér:)

Ef þú giftist

Ég skal kaupa þér kökusnúð
með kardimommum og sykurhúð,
ef þú giftist , ef þú bara giftist,
ef þú giftist mér.

Ég skal gefa þér gull í tá
og góða skó til að dansa á,
ef þú giftist…

Ég skal elska þig æ svo heitt
að aldrei við þurfum að kynda neitt,
ef þú giftist…

Ég skal syngja þér ljúflingslög
og leika undir á stóra sög,
ef þú giftist…

Ég skal fela þig fylgsnum í
svo finni þig ekkert pólití,
ef þú giftist…

JÓNAS ÁRNASON

Góðan dag gott fólk.

Nú er ég að tapa mér, en það líður hjá (vonandi). Við fórum í brúðkaup á laugardaginn og alltaf þegar ég fer í brúðkaup þá fer ég að plana mitt eigið og sé það alveg fyrir mérHlæjandi. Þið haldið örugglega að ég sé nú endanlega orðin rugluð, en það er voðalega ljúft að hugsa til þess að maður eigi þetta eftir þ.e.a.s. giftinguna ekki ruglið hehe. Þannig er mál með vexti að ég þjáist af einskonar brúðkaupsvírus sem mér tekst ekki að losna við, en við Gummi erum búin að vera saman í rúm 15 ár vvváááaááá hvað ég er orðin gömul. Ég er örugglega búin að láta mig dreyma um mitt eigið brúðkaup í 5 ár eða meira og sanka að mér öllu mögulegu sem tengist brúðkaupum og fer á allar brúðkaupssýningar sem haldnar eru í 100 km radíus við mig( smá grín ) hann er ekki alveg svona skæður þessi vírus sem ég er með. En þar sem það kostar sitt að gifta sig þá er nú best að fara að safna því ég vil hafa alla sem mér þikir vænt um í mínu brúðkaupi og þá erum við að tala um 100-150 mannsHissa þið sem lesið þennan pistil vitið þá að þið eruð boðin í brúðkaupið mitt 2043 þá verð ég komin á eftirlaunÓákveðinn

En snúum okkur aftur að laugardeginum 27.maí en þá gengu þau Gísli og Guðlín í það heilaga í Lágafellskirkju. Þetta var frábær dagur í alla staði, takk fyrir daginn elsku Gisli og GuðlínKoss. Athöfnin byrjaði kl 15:00, þau voru svo glæsileg öll sömul, Gísli, Guðlín, Jakob Þór og Guðrún Perla. Þegar athöfnin var búin þá var boðið til veislu í Flugröst í Nauthólsvík en það er salur sem Flugmálastjórn á og rekur. Maturinn var frábær, í forrétt var heitreyktar svartfuglsbringur og innbakaður lax með tilheyrandi sósum, í aðalrétt var nautalund og lambainnanlæri ásamt kartöflum, fersku salati og bökuðu rótargrænmeti og svo í eftirrétt var heimabökuð brúðarterta, sörur og konfekt. Þannig að dagurinn þeirra heppnaðist 100% og allir skemmtu sér vel.

Daginn eftir fórum við heim til Gísla og Guðlínar og fengum afganga síðan kvöldinu áður og ekki var það slæmtUllandi, og svo var mikið verk fyrir höndum hjá hjónakornunum, það var að opna gjafirnarHlæjandi og vá hvað þetta voru flottar gjafir sem þau fengu.

Lítill frændi

Þann 22.maí eignuðus Eysteinn frændi, Hilda og Rúnar Ingi lítinn prins, til hamingju með litla kút og við komum fljótlega í heimsókn.

Sumarbústaðaferð

Við erum að fara í sumarbústað á fösudaginn og ætlum að vera í viku. Gummi fer í bæinn eftir helgina og Ranna, Guðrún og Olga verða með okkur í bústaðnum áfram og vonandi koma Elfa og Emma Karen líka. Ef þið viljið koma þá verðum við í Reykjaskógi:)

Íbúðamál

Það er ekkert að gerast hjá okkur í íbúðarmálum en ég held að við séum búin að taka ákvörðun um að flytja ekki norður(í bili) en það gæti breyst á morgunÓákveðinn ég er að verða geðveik á því að vita ekki neitt um framhaldið og hvað við ætlum að gera og það er ekkert hægt að gera fyrr en við SELJUM arg.

Skólamál

Jæja þá er ég búin í skólanum þangað til í haust, þá fer ég í vettvangsnám í 10 vikur og svo ætla ég að skrifa lokaritgerðina mína í sumar og haust og skila henni í desember. Berglind klárar 1.bekk á föstudaginn og Harpan byrjar í 1.bekk í haust. Ég er búin að fá dagmömmu fyrir Rannveigu í haust og það er hún Bogga okkar sem pasaði stelpurnar, hún er frábær.

OK nú fer ég að hætta þessu bulli og þið sem eruð enn að lesa eiga heiður skiliðHlæjandi en þangað til næst, hafið það gott í góða veðrinu (þaðerrokogrigninghjámérojjj)

kv Kristín, barnsmóðir og hjásvæfa en tilvonandi eiginkona (2043) GummaGlottandi


Gleymdi tveimur afmælum

Hún á afmæli í dag,

hún á afmæli í dag,

hún á afmæli hún Dæda

hún á afmæli í dagGlottandi

 Til hamingju með daginn(þjóðhátíðardag Norðmanna)Dæda sæta

kossar og knús

kveðja Kristín og Co

 

 

Hún á afmæli í dag,

hún á afmæli í dag,

hún á afmæli hún Heiða Gunnólfs

hún á afmæli í dagGlottandi

Til haningju með daginn Heiða mín,

bara 25 dagar í útskriftHlæjandiBrosandiGlottandi

kveðja Kristín


Koma svo:)

Jæja nú er ég bara að láta vita að ég er á lífi og ég er alveg að komast í blogggírinn (hvað eru mörg g í því) vá það má ekki líða svona langur tími á milli blogga, þá verður færslan margar blaðsíður. Jæja fylgist með það fer að fæðast ný færslaHlæjandi

kveða heimahangandihúsmóðirinsemerífæðingarorlofiogskólaGlottandi


Jæja smá blogg í tilefni dagsins:)

Gott kvöld, gott fólk til sjávar og sveita.

Það hefur margt gengið á hjá okkur síðustu daga get ég sagt ykkur. Við ákváðum að skella okkur norður í fermingaveislu hjá honum Grími frænda, við fórum af stað um kl14 á laugardaginn og komum norður um kl 16:30. En það var stutt stopp á Blönduósi í þetta skiptið því hún Rannveig Gréta veiktist og þurftum við að bruna með hana á Bráðamóttöku barna um kl 5 um nóttina. Við mæðgur fórum að sofa um kl 23 um kvöldið og Gummi kom svo uppúr miðnætti og við náðum að sofa til tæplega 3, þá vöknuðum við við að Rannveig Gréta gubbaði og stóð svo á öndinna að við þurftum að snúa henni við og dúmpa á bakið á henni til að hún færi að anda afturFýldur. Hún varð voðalega kvekkt og var svo þreytt að hún lognaðist útaf í fanginu á mér, ég lagði hana aftur útaf og þá gerðist þetta aftur og ég fékk náttúrulega móðursýkiskast og vildi bara hringja í 112 því þetta gerðist 5 sinnum á 30 mínútum. Gummi er svo yfirvegaður og rólegur að tók þessu bara með ró eins og á að gera, ekki panikka. Ég hringdi svo á læknavaktina og talaði við hjúkrunarfræðing og hún bað okkur að hringja í vakthafandi lækni á Blönduósi og láta skoða hana sem við gerðum. Við vorum komin með hana uppeftir kl 4 um nóttina og Gylfi Þormar læknir tók á móti okkur og skoðaði hana vel og allt virtist í lagi þangað til að hún sýndi honum hvað við vorum að meina og þá hafði hann samband við barnalækni á Barnaspítalanum og hann vildi að við kæmum með hana suður í nánari skoðun. Við lögðum í hann suður um kl 5 um nóttina og skildum Berglindi og Hörpu eftir hjá afa sínum og ömmu. Við vorum inn á Bráðamóttöku um 7:30 og þá var hún hin hressasta enda svaf hún alla leið að norðan. Hún var skoðuð og svo sett í mónitor til að fylgjast með mettuninni og púlsinum, það kom bara vel út og var eins og það átti að vera. Um hádegi kom svo barnalæknir og skoðaði hana mjög vel og sendi okkur svo bara heim því það virtist ekkert vera að henniSkömmustulegur og fengum við meira að segja leyfi hjá honum til að fara aftur norður. Við fórum út upp úr hádegi og ætluðum við þá að skella okkur norður aftur en nei takk sagði prinsessan og byrjaði að gubba og gubba aftur og tókum við því þá ákvörðun að fara ekki aftur norður heldur leyfa henni bara að vera í rólegheitum heima.

Stelpurnar komu svo með Olgu ömmu og Bjarna afa suður aftur eftir góða fermingarveislu og ferð í húsin hjá langömmu Immu. Rannveig er enn slöpp var með hita í gær og er búin að vera með niðurgang. Þetta er víst bara svæsin magapest sem gengur yfir á vikuÖskrandiekki gaman.

Grímur til hamingju með fermingardaginn og við hittum þig bara næst þegar við komum norður. Vonandi stoppum við lengur þá.

Ég ákvað að skella mér í Tölfræðipróf í morgun þrátt fyrir lítinn lestur og undirbúning og mér gékk bara miklu betur en ég þorði að vona, svo kemur bara í ljós hvort ég þurfi að fara aftur í prófið 29.maiÓákveðinn,kemur í ljós.

En ég er búin að ákveða það að ég ætla bara að verða 30 á hverju ári, váá gjafirnar sem ég er búin að fáHlæjandi, ég fékk safapressu og ég prófaði hana í kvöld og þetta er bara æði. Svo fékk ég nokkur gjafabréf í Smárlindinni sem ég er búin að fara að versla fyrir, bara gaman. Ég keypti mér gallajakka, gallabuxur, ilmvatn, bodylotion, tvennar fínni buxur, skyrtu, 2 boli, 2 peysur, puma skó og geisladiskGlottandiUllandiHlæjandiKoss. Takk fyrir mig og kossar knús. ég á meira að segja 35000 eftir og ég er ekki búin að ákveða hvað ég ætla að gera við hann.Hissa

jæja nú er ég hætt í bili og kveð að sinni.

góða nótt og dreymi ykkur vel

kv Kristín


Vvóóó stinnur rass og sléttur magi:)

Hæhæ ég lofaði því í gær að láta ykkur vita hvernig var að vakna í morgun, haldið að ég hafi ekki vaknað með stinnan rass og sléttan maga váá frábært. Nei annars það var nú ekki svo gott ég er enn með þessar rúllupylsur hangandi framan á mér og lafandi rassÖskrandi. Góði Guð ef þú getur ekki gert mig mjóa gerðu þá vini mína feitaGlottandikv Kristín.

Nei annars að öllu gamni slepptu þá líður mér bara vel, þrátt fyrir próflestur og tölfræðitíma á eftir en það venstÓákveðinn. Það er alveg merkilegt hvað það er mikið af fólki sem man eftir þessum góða degi, takk fyrir smsin, hringingarnar og kveðjurnar þið eruð æðiHlæjandi

Smá moli frá Hörpu Sól: Mamma, hvað ertu aftur gömul í dag? Ég er þrítug sagði ég, þá sagði hún, ó ég hélt að þú værir fimmtug ég sagði konunum á leikskólanum í gær að þú ættir afmæli á morgun og þú værir fimmtug. HHmmmmmKoss

kossar og knús frá gömlu í fjöllunum


Þessi fallegi dagur:)

Jæja þá er dagurinn að renna upp, já dagurinn sem kemur til með að breyta mér í miðaldra konu hehe smá djók. En ég ætla semsagt að njóta dagsins í botn, því í dag er ég tuttugu plús en á morgun kemst ég á fertugsaldurinnÓákveðinn, en svona er víst lífið. En ég get huggað mig við það að ef ég líki mér við ost eða rauðvín þá eru það hvorutveggja vörur sem verða betri með aldrinumGlottandi, haldið þið að ég geri það ekki líka. En annars er allt gott að frétta héðan úr fjöllunum, gott veður og sumarið nálgast óðum. Það er ekki eins gott að frétta að íbúðarmálum hjá okkur, ekkert að gerastÖskrandi, ég þoli það ekki. Við Ranna systir fórum í bíó í fyrrakvöld og sáum failure to launch og hún er bara nokkuð góð þá sérstaklega þar sem við fórum í lúxussalinnHlæjandibara snilld. Ég er að fara í Tölfræðipróf á þriðjudaginn og ég lét skrá mig í aukatíma hjá fullorðinsfræðslunni og það er bara snilld, ég sé loksins út á hvað þetta gengur. Jæja látum þetta gott heita í dag og ég skal láta vita hvernig mér líður í fyrramálið þegar ég vaknaSkömmustulegur.

kv Kristín osturSvalur


Hún á afmæli í dag

Ég gleymdi einu hún Ranna systir á afmæli í dag og er orðin 27.ára vúhú til hamingju með daginn dúllan mínHlæjandi kv Kristín

Gulla GÆS:)

Góðan dag ég hef það gott í dag, þið sem höfðuð áhyggjur af heilsunni minni í dag. Gærdagurinn var hreint út sagt frábærHlæjandiþað var verið að gæsa hana Guðlín, hún er sem sagt að fara að giftast honum Gísla sínumBrosandi. Við mættum galvaskar heim til hennar kl 10 í gærmorgun og fengum henni lista yfir þá hluti sem hún átti að taka með sér það voru t.d. orðabók, háfur, vöðlur, betri föt, sundföt og fleiri ómissandi hlutir á svona dögum. Þá var haldið í sporthúsið og fórum við í danstíma en við heldum ekki út allan tíman því kennarinn var svo fyndinnGlottandi. Svo fórum við í RÍKIÐSvalur og ég fékk mér nokkra Brísera (man ekki hvernig það er skrifað) bara nokkra hehe. Næst var haldið í Kringluna og þar fékk Guðlín að fara í ratleik, bara gaman hjá henni Glottandi. Hún var svo góð gæs og gerði allt sem við báðu hana um að gera, hún fór meira að segja í ríkið með sparibaukinn sinn og keypti sér bríser fyrir innihaldið. Nei smá grín, ég fór í bankann með 300 kall og lét skipta þeim í krónupeninga og svo fékk ég bauk og lykilinn af honum, svo tróðum við krónunum í hann og hún fór með hann í ríkið og tæmdi hann og taldi úr honum, bara fyndið. Skautahöllin í Laugardal var næst fyrir valinu og fórum við allar á skauta en ég fílaði mig bara sem 90.ára gamalmenni með grind til að stiðja mig við á skautunum en vá þetta var svo gaman. Næst á dagskrá var tjörnin, gæsin þurfti auðvitað að hitta jafningja sína og bjóða þeim upp á brauð, hún er svo hugulsöm þessi elska. En næsti áfangastaður var kærkomin eftir dansinn, Kringluröltið, skautana, rölt í bænum brrrrrr það var svo kalt, en við fórum í Baðhúsið og fórum í laugina og lágum þar í góðan tíma og fórum svo í betri gallan og héldum á Caruso og fengum frábæran mat og hvítvínið var enn betraSkömmustulegur. Eftir mikið spjall og góðan mat enduðum við frábæran dag í keilu. Stelpurna héldu að heilsan yrði ekki góð hjá mér í dag sökum drykkju og þar sem ég er ekki í mikilli þjálfun þá tókst mér þetta bara vel og heilsan er góð í dag þar sem ég fékk að sofa út í morgun (égábestamanninn).

En í lokinn vil ég þakka Guðlín, Grétu, Bryndísi, Heiðu, Dagný, Veigu, Lollu, Ingibjörgu og Heidí fyrir frábæran dagGlottandihann heppnaðist fullkomlega og Guðlín þú varst bara bestKoss

kv Kristín sem er ekki þunnUllandiog geri aðrir betur.


ÞAÐ KOM STRÁKUR:)

HlæjandiFRÁBÆRT það kom strákur hjá Jonna og Lilju til hamingju elskurnar mínarHlæjandiég sem hélt að þetta væri stelpa, en það er bara fyrir öllu að það gékk vel og öllum heilsast vel. Hann var 3620gr og 54 cm, hann er langur eins og pabbi sinn en ég veit ekki alveg hvar hún geymdi prinsinn hún Lilja, það sást nú ekki mikið á henni. En enn og aftur til hamingju og vonandi sé ég hann sem fyrstGlottandi

kv Kristín og co


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband